Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Nr. 21/123
Þskj. 1169 — 327. mál.
Þingsályktun
um kortlagningu ósnortinna víðerna á Íslandi.
Alþingi ályktar að fela umhverfisráðherra að láta kortleggja ósnortin víðerni á Íslandi. Gerð verði áætlun um verkefnið, umfang þess og kostnað, og nauðsynleg framlög mörkuð í fjárlögum.
Samþykkt á Alþingi 10. mars 1999.