Mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar

Mánudaginn 14. júní 1999, kl. 17:30:31 (227)

1999-06-14 17:30:31# 124. lþ. 4.4 fundur 3. mál: #A mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar# þál., ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 124. lþ.

[17:30]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Einar Már Sigurðarson er sessunautur minn og hann hrökk mjög við þegar þessi yfirlýsing kom frá þingflokksformanninum og taldi sig ekki vera sammála. Því miður er hann hér ekki til að gera grein fyrir afstöðu sinni en ég átti því von á að talsmaður Samfylkingarinnar í þessu máli, hv. þm. Össur Skarphéðinsson, gæti gert grein fyrir málinu.