Frestun á fundum Alþingis

Miðvikudaginn 16. júní 1999, kl. 14:13:58 (402)

1999-06-16 14:13:58# 124. lþ. 9.1 fundur 12. mál: #A frestun á fundum Alþingis# þál., JÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 124. lþ.

[14:13]

Jóhann Ársælsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Hæstv. forsrh. sagði hér áðan að þetta mál væri ekki til umræðu undir þessum lið. Hvað annað? Það er verið að ákveða að slíta þingi og fara heim, það er það sem ég er að ræða hér. Það er ekki boðlegt að menn skuli fara heim af Alþingi og skilja lýðræðislegt kosningakerfi eftir óvirkt í landinu.