Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):
Borist hefur svofellt bréf, dags. 16. febrúar 2000:
,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur vegna læknisaðgerðar leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Vestf., Karl V. Matthíasson sóknarprestur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Sighvatur Björgvinsson, 2. þm. Vestf.``
Karl V. Matthíasson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðinn velkominn til starfa.