Forseti (Halldór Blöndal):
Um kl. tvö í dag fer fram umræða utan dagskrár um öryggismál kjarnorkustöðvarinnar í Sellafield. Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir er málshefjandi og beinir fyrirspurn til hæstv. umhvrh. Sivjar Friðleifsdóttur sem verður til andsvara.
Þá er rétt að geta þess að nokkrar tilfærslur verða á dagskrármálum á síðari fundinum, fyrirspurnafundinum, af óviðráðanlegum ástæðum.