Stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Fimmtudaginn 23. mars 2000, kl. 14:56:36 (5733)

2000-03-23 14:56:36# 125. lþ. 86.3 fundur 502. mál: #A stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar# frv. 76/2000, SAÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 125. lþ.

[14:56]

Sigríður A. Þórðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Mér finnst það koma mjög skýrt fram í þessari umræðu að það eru skiptar skoðanir um það sem þingmaðurinn nefndi hér. Því var varpað fram í upphafi ræðu hennar áðan að Sjálfstfl. varpaði af sér ábyrgð yfir á samstarfsflokkinn í erfiðum málum. Við því var ég fyrst og fremst að bregðast. Ég ítreka mótmæli mín gegn því að sú sé raunin. Þvert á móti stendur Sjálfstfl. mjög sterkur og saman að baki stjórnarfrumvörpum.