Drífa Hjartardóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil bara geta þess að í nýjum Barnaspítala Hringsins verður þjónusta við foreldra og aðstandendur aukin og það frv. sem við erum að ræða hér nú mun koma mjög til móts við aðstandendur langveikra barna.