Norræna ráðherranefndin 1999

Fimmtudaginn 06. apríl 2000, kl. 12:51:00 (6003)

2000-04-06 12:51:00# 125. lþ. 94.1 fundur 470. mál: #A Norræna ráðherranefndin 1999# skýrsl, 422. mál: #A norrænt samstarf 1999# skýrsl, ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 125. lþ.

[12:51]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir þetta. Ég vildi aðeins spyrja hvort hann gæti sagt okkur eitthvað meira um það sem kemur fram í skýrslunni um þá rannsókn sem gerð var á byggðamálum í Finnlandi og þann vinkil varðandi sóknarfæri í upplýsingatækninni sem áhrifavaldi í byggðaþróun. Var þetta hugsað þannig varðandi rannsóknina sem gerð var í Finnlandi að gerðar verði rannsóknir í fleiri löndum og hvort Ísland er þá hugsanlega í þeirri röð og gerðar verði rannsóknir í byggðamálum á vegum norrænu ráðherranefndarinnar?