Atvinnuréttindi útlendinga

Þriðjudaginn 11. apríl 2000, kl. 15:42:15 (6349)

2000-04-11 15:42:15# 125. lþ. 97.17 fundur 261. mál: #A atvinnuréttindi útlendinga# (undanþágur) frv. 41/2000, Frsm. ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 125. lþ.

[15:42]

Frsm. félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Félmn. fór ekki yfir verðandi samþykktir Evrópuráðsins eða þær reglur sem þar eru í undirbúningi. Hins vegar má vel vera að sú nefnd sem undirbjó frv., nefnd sem var skipuð fulltrúa Reykjavíkurborgar, dómsmrn., félmrn. og samgrn. hafi gert það. Ég reikna með að þessi ráðuneyti hafi haft einhverjar upplýsingar um það sem hv. þm. Margrét Frímannsdóttir nefndi og hafi haft þær til hliðsjónar þegar frv. var undirbúið. Um það hef ég því miður ekki upplýsingar.