Rafræn eignarskráning á verðbréfum

Fimmtudaginn 27. apríl 2000, kl. 20:57:00 (6781)

2000-04-27 20:57:00# 125. lþ. 103.2 fundur 163. mál: #A rafræn eignarskráning á verðbréfum# (breyting ýmissa laga) frv. 32/2000, MF
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 125. lþ.

[20:57]

Margrét Frímannsdóttir:

Virðulegi forseti. Það kemur æðioft fyrir þegar við tökum frv. til umræðu að málfar þeirra er þannig að það er ekki fyrir almenning að skilja. Ég vil bara lýsa yfir stuðningi okkar fulltrúa Samfylkingarinnar í efh.- og viðskn við þá tillögu sem hér er flutt af hv. þm., formanni efh.- og viðskn., Vilhjálmi Egilssyni. Þetta orðalag er heldur til bóta, það orðalag sem þarna er lagt til, frá því sem gert er ráð fyrir í frv.