Þjónustukaup

Föstudaginn 28. apríl 2000, kl. 13:39:14 (6810)

2000-04-28 13:39:14# 125. lþ. 104.3 fundur 111. mál: #A þjónustukaup# frv. 42/2000, MF (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 125. lþ.

[13:39]

Margrét Frímannsdóttir:

Virðulegi forseti. Eins og fram kom í umræðunni í gær styðjum við fulltrúar þingflokks Samfylkingarinnar í efh.- og viðskn. frv. og allar þær brtt. sem hér liggja frammi nema þennan 6. lið. Við höfum óskað eftir því að hann verði tekinn til endurskoðunar milli 2. og 3. umr. og fyrirsögn V. kafla verði orðuð á annan hátt en hér er gert ráð fyrir, þ.e. að breytt verði setningunni ,,afhendingardráttur seljenda þjónustu``. Við sitjum því hjá um atkvæðagreiðslu um þennan lið.