Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. svörin. Að mínum dómi voru þær spurningar sem ég setti fram skýrar, auðskiljanlegar og vel skilgreindar og ætti að vera auðsvarað. En eins og ég hef áður gert grein fyrir úr ræðustól var áþekkum spurningum svarað árið 1994 og væri hægt að fara yfir tæknilegar hliðar þess máls en ekki rétti tíminn til þess nú.
Mér finnst gott til þess að vita að hæstv. fjmrh. ætlar að verða við beiðni minni með þeim hætti sem hann hefur hér skýrt frá. Ég þakka svörin.