JHall fyrir HÁs

Miðvikudaginn 03. nóvember 1999, kl. 13:31:48 (1031)

1999-11-03 13:31:48# 125. lþ. 18.93 fundur 115#B JHall fyrir HÁs#, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 125. lþ.

[13:31]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta tilkynnist yður hér með, herra forseti.

Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.``

Kjörbréf Jónasar Hallgrímssonar hefur verið samþykkt. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.