Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vorkenni Hafnfirðingum að búa við þessa meirihlutastjórn íhalds og Framsóknar og ég vorkenni Kópavogsbúum af sömu ástæðum. Og ég vorkenni íslenskri þjóð að þurfa að búa í átta ár við íhald og Framsókn. Guð láti á gott vita þannig að þessu ljúki fyrr en síðar.