Fjarskipti

Fimmtudaginn 11. nóvember 1999, kl. 12:29:02 (1268)

1999-11-11 12:29:02# 125. lþ. 23.6 fundur 122. mál: #A fjarskipti# (heildarlög) frv. 107/1999, LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 125. lþ.

[12:29]

Lúðvík Bergvinsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að svar hæstv. samgrh. hafi verið eins skýrt og vænta mátti og það verður ekki túlkað á aðra lund en þá að þegar kemur að fyrirhugaðri sölu Landssímans verði umrætt grunnnet látið fylgja með í þeirri sölu. Það er vonlaust að túlka þessi orð öðruvísi enda var svar hæstv. samgrh. skýrt og ég ætla að leyfa mér að setja fram þá fullyrðingu að hæstv. samgrh. hafi sett það fram hér í þessa umræðu að þegar Landssíminn verður seldur þá verði grunnnetið látið fylgja með honum.