Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 22:01:58 (1595)

1999-11-16 22:01:58# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[22:01]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Við eigum aldrei að haga okkur samkvæmt skoðanakönnunum hér á Alþingi heldur fara eftir því sem við vitum best og réttast og eftir sannfæringu okkar.

Mig langar þá að spyrja hv. þm. og vona að hann geti komist til að svara því þá síðar þó að andsvörum sé að verða lokið: Hvað munu hann og Samfylkingin gera þegar við erum búin að fella tillögu þeirra um lögformlegt umhverfismat? Ætlar hann þá að standa að virkjun eða vera á móti henni?