Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:36:33 (1706)

1999-11-17 19:36:33# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:36]

Jón Bjarnason (andsvar):

Hæstv. forseti. Í þáltill. stendur. Ég vil biðja hv. þm. að lesa þar lið nr. 7:

,,Nýjum stóriðjuverkefnum verði fundinn staður utan athafnasvæða höfuðborgarinnar`` o.s.frv. Hún endar: ,,Umhverfissjónarmiða verði gætt í hvívetna.``

En hvar er orkusölusamningurinn? Hvar er orkuverðið? Ég bið, forseti, að það komi þá bara hér upp á borð hvert verðið er.