Halldór Blöndal (um fundarstjórn):
Herra forseti. Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri það í þingsölum að verið sé að bera á mann sakir og reyna að draga úr virðingu þingmanns með því að vitna til úrskurðar sem viðkomandi hv. þm. gaf sem ráðherra. Ég er að minna á verk hans á hlutlausan og hógværan hátt en það eiga svo að heita svívirðingar.