Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 14:35:03 (1872)

1999-11-18 14:35:03# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, GÁS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[14:35]

Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):

Herra forseti. Þær gerast nú alltaf merkilegri yfirlýsingarnar því að nú kemur í ljós að það skiptir mestu máli hver vinnur með Sjálfstæðisflokknum, ekki hvað hann gerir sjálfur. Hann var greinilega algert aukahjól undir þessum vagni þá jafnt sem nú.