Vilhjálmur Egilsson:
Hæstv. forseti. Ég tel skynsamlegt að selja af hlut ríkissjóðs í þessum bönkum, skynsamlegra en að auka hlutafé til þess að uppfylla skilyrði Verðbréfaþings. Ég tel að þetta sé rétt tímasetning á sölunni.
Hæstv. forseti. Mér þykir það ánægjulegt að geta fengið að segja já við þessu frv., og ég vona að fljótt aftur komi nýtt þingmál hér inn í salinn þar sem ég get fengið að segja aftur já við því að selja enn þá meira. Ég segi já.