Skattfrelsi norrænna verðlauna

Fimmtudaginn 16. desember 1999, kl. 15:27:21 (3145)

1999-12-16 15:27:21# 125. lþ. 47.10 fundur 4. mál: #A skattfrelsi norrænna verðlauna# frv. 126/1999, MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 125. lþ.

[15:27]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Það má vera að það hafi farið fram hjá mér en ég heyrði ekki að hæstv. fjmrh. tæki afstöðu til þeirrar skoðunar sem við viljum að jafnframt fari fram á innlendum verðlaunaveitingum, þ.e. hvort það hafi eitthvað verið skoðað. Tekur fjmrh. hæstv. undir þá skoðun sem fram kemur í nál. að jafnframt þurfi að fara yfir þær innlendu verðlaunaveitingar sem eru í gangi?