Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 20. desember 1999, kl. 10:21:16 (3515)

1999-12-20 10:21:16# 125. lþ. 50.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, Frsm. meiri hluta HjÁ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 125. lþ.

[10:21]

Frsm. meiri hluta iðnn. (Hjálmar Árnason) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Vegna þeirra orða sem hér hafa fallið þá er það rétt sem fram hefur komið að skipulagsstjóri sendi mér skýrslu og barst hún mér seint í gærkvöldi. Og ég mun sjá til þess að henni verði dreift til hv. iðnaðarnefndarmanna strax á eftir.