Ferill 312. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 562  —  312. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um skipan nefndar til að móta tillögur um sveigjanleg starfslok.

Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Guðjón Guðmundsson, Vilhjálmur Egilsson,


Árni R. Árnason, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Gunnar Birgisson,
Drífa Hjartardóttir, Ásta Möller, Katrín Fjeldsted, Arnbjörg Sveinsdóttir.


    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa nefnd til að móta tillögur um sveigjanleg starfslok.

Greinargerð.


    Ályktun sama efnis var samþykkt á Alþingi 13. apríl 1989. Þáverandi forsætisráðherra skipaði nefnd 22. apríl 1989 til framgangs málinu. Hún kom saman til fundar 13. júní 1991 og lagði á ráðin um gagnaöflun fyrir nefndarstarfið. Nokkrum gögnum var safnað en fundir nefndarinnar urðu ekki fleiri og engu áliti var skilað.
    Flutningsmenn telja mikilvægi málsins ekki síðra nú en þá.