Ferill 382. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 640  —  382. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um sjúkrahótel.

Frá Sigríði Jóhannesdóttur.



    Er fyrirhugað að koma upp sjúkrahótelum með hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu (svonefndum „sub-acut“-deildum) í tengslum við hátæknisjúkrahúsin í Reykjavík til þess að stytta biðlista og lækka kostnað við sjúkralegu sjúklinga sem eru að jafna sig eftir bráð veikindi eða aðgerð?