Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 896  —  594. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um símnotkun og símkostnað landsmanna.

Frá Katrínu Fjeldsted.



     1.      Hvernig hefur símkostnaður breyst hjá fyrirtækjum annars vegar og einstaklingum hins vegar síðustu tíu ár?
     2.      Hvaða breytingar hafa orðið hjá Reykvíkingum á notkun síma og kostnaði við hana síðustu tíu ár, sundurliðað eftir langlínusímtölum annars vegar og innanbæjarsímtölum hins vegar?
     3.      Hvernig hefur símkostnaður Reykvíkinga þróast á þessu tímabili miðað við vísitölu framfærslukostnaðar?


Skriflegt svar óskast.