Umboðsmaður aldraðra

Fimmtudaginn 08. febrúar 2001, kl. 15:17:35 (4375)

2001-02-08 15:17:35# 126. lþ. 66.5 fundur 117. mál: #A umboðsmaður aldraðra# þál., DSigf (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 126. lþ.

[15:17]

Drífa J. Sigfúsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir ágæt viðbrögð. Ég vona að þingheimur geri sér far um að afla sér þeirra skýrslna sem ég benti á sem eru til hjá sænska umboðsmanninum sem gæti kannski orðið til þess að menn kæmust að annarri niðurstöðu en nú er rætt um og væri kannski sanngjarnari fyrir alla landsmenn.

Ég vildi aðeins ítreka að ég held að það sé mjög mikilvægt að skoða þær skýrslur sem þar eru til. Við þurfum ekki alltaf að finna upp hjólið.