Aðgengi að úrlausnum samræmdra prófa

Mánudaginn 12. febrúar 2001, kl. 15:28:20 (4413)

2001-02-12 15:28:20# 126. lþ. 67.1 fundur 279#B aðgengi að úrlausnum samræmdra prófa# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur, 126. lþ.

[15:28]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Varðandi það sem hv. þm. nefndi, þ.e. gjaldtöku ef menn óski eftir þessum prófum, þá hefur ráðuneytið úrskurðað á þann veg að ekki sé unnt að krefjast annarra gjalda en þeirra sem beinlínis snerta ljósritun á gögnum eða annað slíkt.