Flm. (Sverrir Hermannsson) (andsvar):
Herra forseti. Já, ég er sammála því. Í tillögugerðinni er stiklað á örfáum atriðum til viðmiðunar en engin allsherjarúttekt gerð á því sem koma þarf til meðferðar í þeirri nefnd sem vonandi verður skipuð til þess að fá málið til meðferðar.