Stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða

Fimmtudaginn 26. apríl 2001, kl. 15:10:19 (6888)

2001-04-26 15:10:19# 126. lþ. 113.5 fundur 480. mál: #A stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða# frv., GAK
[prenta uppsett í dálka] 113. fundur, 126. lþ.

[15:10]

Guðjón A. Kristjánsson (frh.):

Herra forseti. Ég var þar kominn í ræðu minni fyrr í morgun að ég óskaði sérstaklega eftir viðveru hæstv. iðnrh. Ég vil ganga eftir því hvar hæstv. iðnrh. er.

(Forseti (ÁSJ): Forseti vill upplýsa að hæstv. iðnrh. hann er ekki í þinghúsinu og er á förum erlendis.)

Má ég þá biðja sérstaklega um að málinu verði frestað?

(Forseti (ÁSJ): Forseti mun taka til greina óskir þingmannsins um að fresta frekari umræðu um 5. dagskrármálið.)