Breyting á IX. viðauka við EES-samninginn (fjármálaþjónusta)

Föstudaginn 11. maí 2001, kl. 10:31:24 (7475)

2001-05-11 10:31:24# 126. lþ. 120.16 fundur 641. mál: #A breyting á IX. viðauka við EES-samninginn (fjármálaþjónusta)# þál., Frsm. TIO
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 126. lþ.

[10:31]

Frsm. utanrmn. (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

Með tillöguninni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um stofnun og rekstur rafeyrisstofnana og eftirlit með þeim.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.