Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Vegna ummæla hv. þm. um útbýtingarfund á laugardag er rétt að endurtaka það sem forseti þingsins sagði hér við upphaf þingfundar að það var tilkynnt um það á föstudegi að búast mætti við útbýtingarfundi á laugardegi og hann var með hefðbundnum hætti.