Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Ég hefði talið æskilegra að á meðan slíkur samráðsfundur ætti sér stað verði gert stutt hlé á fundinum frekar en að taka mál til umræðu sem eru frá iðnn. Sú sem hér stendur er m.a. fulltrúi í iðnn., bara svo að dæmi sé tekið. Ég mundi gjarnan vilja vera viðstödd þá umræðu og ég legg því til að við gerum stutt hlé á fundinum.