Jón Bjarnason:
Herra forseti. Mál þetta er illa undirbúið til afgreiðslu í þinginu. Landssími Íslands á áfram að vera í sameign þjóðarinnar. Styrk hans á að nýta til að byggja upp gott fjarskiptakerfi sem nái til allra landsmanna án mismununar í verði eða gæðum. Það á að vísa þessu máli frá og taka fyrir næsta mál á dagskrá. Ég segi já.