Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Nú er úr vöndu að ráða fyrir forseta. Hann fær illa séð hvernig þetta tengist mjög störfum þingsins og fær illa séð hvernig hann getur úrskurðað beint í þessu viðkvæma deilumáli og vill benda hv. þm. og viðkomandi ráðherra á að hefja ekki almenna umræðu um byggðamál.