Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Ég held að hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson hafi verið kominn í andsvar við hv. þm. Steingrím J. Sigfússon. Ég ætlaði ekki að áætla fyrir neinu brottkasti, það var hv. þm. Steingrímur Jóhann Sigfússon sem ætlaði að gera það.