Almannatryggingar

Fimmtudaginn 19. október 2000, kl. 16:03:37 (842)

2000-10-19 16:03:37# 126. lþ. 14.9 fundur 78. mál: #A almannatryggingar# (tryggingaráð) frv., Flm. ÁE (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 14. fundur, 126. lþ.

[16:03]

Flm. (Ágúst Einarsson):

Herra forseti. Á þskj. 78 hef ég leyft mér að flytja frv. til laga um breyting á lögum um almannatryggingar ásamt þeim hv. þm. Ástu R. Jóhannesdóttur, Össuri Skarphéðinssyni og Guðrúnu Ögmundsdóttur.

Frv. gerir ráð fyrir að í grein laga um tryggingaráð komi tveir nýir málsliðir sem orðast svo:

,,Landssamband eldri borgara tilnefnir til tveggja ára einn aðalmann í tryggingaráð og annan til vara. Öryrkjabandalag Íslands tilnefnir til tveggja ára einn aðalmann í tryggingaráð og annan til vara.``

Frv. er einfalt í útfærslu, en með samþykkt þess er tryggð aðild eldri borgara og öryrkja að tryggingaráði Tryggingastofnunar ríkisins. Þessir hópar eru meðal helstu lífeyris- og bótaþega Tryggingastofnunar og viðskiptavina stofnunarinnar og því er eðlilegt að mati flutningsmanna að þeir fái beina aðild að stjórn hennar.

Nú er tryggingaráð þannig skipað að Alþingi kýs á fyrsta þingi eftir hverjar almennar alþingiskosningar fimm menn í tryggingaráð og fimm til vara en verkefni Tryggingastofnunar samkvæmt lögum eru þrenns konar, þ.e. að annast lífeyristryggingar, sem skiptast í ellilífeyri, örorkulífeyri, tekjutryggingu, örorkustyrki, barnalífeyri og bætur í fæðingarorlofi, og að sjá um slysa- og sjúkratryggingar.

Tryggingaráð skal hafa eftirlit með fjárhag, rekstri og starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og gæta þess að hún starfi í samræmi við lög og reglugerðir á hverjum tíma. Leita skal samþykkis tryggingaráðs á margvíslegum þáttum í starfsemi Tryggingastofnunar.

Að mati flutningsmanna er brýnt að tryggja betur hagsmuni eldri borgara og öryrkja í Tryggingastofnun. Þessir hópar eiga flest sitt undir þessari stofnun og margir allt fjárhagslega. Því er nauðsynlegt, herra forseti, að mati okkar þingmanna Samfylkingarinnar að sjónarmið eldri borgara og öryrkja komist skýrt til skila í starfsemi stofnunarinnar og því er þetta frv. lagt fram.

Undanfarin ár hefur það verið áberandi í opinberri umræðu að ekki hefur verið hlustað af nægri athygli á skoðanir eldri borgara og öryrkja. Þessir hópar hafa reynt að sækja rétt sinn með miðlun upplýsinga til samfélagsins og þrýst á stjórnmálamenn að breyta um stefnu. Þessi barátta hefur oft borið árangur en er þó langt frá því að vera fullnægjandi og það að hlutirnir eru ekki reknir í sátt við þessa hópa sjáum við m.a. á endurteknum mótamælaaðgerðum þessara þjóðfélagsborgara.

Eldri borgarar starfa í fjölmörgum samtökum. Starfrækt eru ein 45 félög eldri borgara víðs vegar um landið. Stærst þeirra er Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, en þessi félög starfa innan heildarsamtakanna Landssamband eldri borgara. Aðgerðahópur aldraðra er mjög virkur hópur eldri borgara sem hefur starfað undanfarin missiri. Í hugum jafnaðarmanna er grundvallaratriði að samfélagið búi vel að öldruðum og öryrkjum. Og það má dæma um samfélagið, herra forseti, hve vel því gengur að uppfylla þá kröfu. Margir þeirra eiga ekki í önnur hús að venda. Það er algerlega óviðunandi að eldri borgarar og öryrkjar verði að sætta sig við geðþóttaákvarðanir ríkisstjórnar hvers tíma og vera í óvissu um kjör sín. Núverandi ríkisstjórn hefur tekið minna tillit til hagsmuna þessa fólks en áður hefur þekkst. Þess vegna, herra forseti, er mjög mikilvægt að formleg þátttaka eldri borgara og öryrkja sé tryggð í stjórn þessara mála eins og lagt er til í frv. Þess má geta, herra forseti, að áður hafa verið fluttar tillögur á Alþingi af þingmönnum um svipað efni, þ.e. að fjölga í tryggingaráði, og má þar nefna Karl Steinar Guðnason, fyrrv. þingmann Alþfl., og hv. þm. Kristin H. Gunnarsson.

Ef frv. verður að lögum yrði tryggingaráð skipað sjö mönnum. Í frv. er lagt til að heildarsamtök aldraðra, Landssamband eldri borgara, tilnefni einn fulltrúa og annan til vara og jafnframt er lagt til að Öryrkjabandalag Íslands, sem er heildarsamtök öryrkja hérlendis, tilnefni einn fulltrúa og annan til vara.

Frumvarp þetta, herra forseti, var lagt fram á 122. þingi og var sent fjölmörgum aðilum til umsagnar og fékk einstaklega góðar umsagnir allra þeirra sem að málum hafa komið, hvort sem þeir voru starfandi í félögum eldri borgara eða á öðrum vettvangi. Flutningsmenn, herra forseti, eru þess fullvissir að lögfesting frv. yrði mikilvæg réttarbót fyrir eldra fólk og öryrkja.

Að svo mæltu, herra forseti, og að lokinni þessari umræðu geri ég það að tillögu minni að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.