Stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum

Þriðjudaginn 21. nóvember 2000, kl. 23:40:02 (2108)

2000-11-21 23:40:02# 126. lþ. 28.13 fundur 215. mál: #A stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum# (gildistími) frv., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 126. lþ.

[23:40]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Það er nú einfaldlega þannig að við í Frjálslynda flokknum eigum ekki aðild að þessari endurskoðunarnefnd. Þess vegna hlýt ég auðvitað að spyrja sjútvrh., þegar ég sé að hann breytir hér út af áætlun sinni frá sl. vori, um hvernig þessu máli skuli fram haldið. Þess vegna legg ég þessar spurningar fram. Mér finnst leggjast heldur lítið fyrir kappann að geta ekki að svarað öðruvísi en hann gerði hér áðan.