Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Hér er á ferðinni jafnréttismál, ekki bara á milli íbúa einstakra sveitarfélaga heldur líka á milli þeirra lögbýla sem annars vegar eru innan fjölmennra sveitarfélaga og hins vegar fámennra. Ég tel þetta mjög góða lausn og segi já.