Málefni aldraðra

Fimmtudaginn 14. desember 2000, kl. 12:14:44 (3360)

2000-12-14 12:14:44# 126. lþ. 49.8 fundur 317. mál: #A málefni aldraðra# (Framkvæmdasjóður aldraðra) frv. 172/2000, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 126. lþ.

[12:14]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Til að enda þessa umræðu, sem ég held að sé nú að ljúka, ætla ég að endurtaka það sem ég sagði áðan, þ.e. ég hef þegar komið því til fulltrúa míns í þessum starfshópi að taka sérstaklega tillit til þessa fólks af því ég tel að það sé réttlætismál. Ég vona að það hafi komið skýrt fram í umræðunni.