Tollalög

Laugardaginn 16. desember 2000, kl. 18:17:49 (3535)

2000-12-16 18:17:49# 126. lþ. 52.8 fundur 333. mál: #A tollalög# (ríkistollstjóri) frv. 155/2000, VE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 126. lþ.

[18:17]

Vilhjálmur Egilsson:

Virðulegi forseti. Þær breytingar sem felast í þessu frv. eru að mörgu leyti skynsamlegar. Ég tel rétt að gera þessar breytingar eins og á stendur. Þetta mál hefur fengið vandaða umfjöllun í meðferð efh.- og viðskn. (Gripið fram í.) Mér og þeim sem skipa meiri hluta nefndarinnar er ekkert að vanbúnaði að vinna þetta mál og það mun verða til góðs fyrir þá starfsmenn sem í hlut eiga.