Ferill 35. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 35  —  35. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum þjóðgarðs á svæðinu norðan Vatnajökuls.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



    Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að fram fari sjálfstætt mat á umhverfisáhrifum þjóðgarðs á svæðinu norðan Vatnajökuls, þ.e. svæðinu kringum Snæfell með Eyjabökkum og Vesturöræfum, í þeim tilgangi að geta borið saman áhrif ólíkra nýtingarmöguleika svæðisins?