Ferill 61. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 61  —  61. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um könnun á áhættuhegðun karla.

Frá Svanfríði Jónasdóttur og Þórunni Sveinbjarnardóttur.



     1.      Hefur ráðherra látið ,,kanna sérstaklega þátt karlmennskuímyndar í þeirri hegðun karla sem orsakar slys, sjálfsvíg og eitranir“, sbr. lið 6.10 í þingsályktun um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998?
     2.      Hverjar eru niðurstöður könnunarinnar og ef þær liggja ekki fyrir, á hvaða stigi er könnunin?