Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 112  —  112. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um móttöku flóttamanna frá Júgóslavíu.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hve margir flóttamenn hafa sl. fimm ár komið til landsins frá ríkjum sem áður heyrðu til Júgóslavíu?
     2.      Hvaða sveitarfélög hafa tekið á móti flóttafólkinu og hve margir fóru á hvern stað?
     3.      Hve margir hafa flutt frá upphaflegu aðsetri til höfuðborgarsvæðisins?
     4.      Hve margir hafa flust búferlum frá Íslandi?