Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 323  —  292. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 45/1999, um Lífeyrissjóð sjómanna.

Flm.: Guðjón A. Kristjánsson.



1. gr.

    1. mgr. 5. gr. laganna verður svohljóðandi:
    Iðgjald til sjóðsins skal nema 12% af heildarlaunum og greiðir launþegi 4% og launagreiðandi 8%.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. laganna mynda tvö prósentustig af greiðslu launagreiðanda ekki réttindi til lífeyris frá gildistöku laga þessara til 31. desember 2006.

Greinargerð.


    Um alllangt skeið hafa eignir Lífeyrissjóðs sjómanna ekki staðið undir framtíðarskuldbindingum sjóðsins samkvæmt tryggingafræðilegu mati. Stjórn sjóðsins hefur leitað leiða til að minnka muninn milli eigna hans og skuldbindinga. Í nokkur skipti hafa verið gerðar lagabreytingar sem allar hafa haft í för með sér mikla skerðingu á lífeyrisréttindum sjóðfélaga í Lífeyrissjóði sjómanna. Þrátt fyrir þetta vantar enn um 2.185 millj. kr. eða 3,2% til þess að eignir sjóðsins standi undir skuldbindingum hans samkvæmt tryggingafræðilegu mati miðað við árslok 1999.
    Með því að hækka lögbundið framlag launagreiðanda í Lífeyrissjóð sjómanna um tvö prósentustig, án þess að lífeyrisréttindi sjóðfélaga aukist, er stigið mikilvægt skref í þá átt að brúa það sem upp á vantar til að sjóðurinn eigi fyrir framtíðarskuldbindingum sínum. Auk þess er það réttlætismál að launagreiðendur leggi fram sinn skerf og taki þátt í því að koma sjóðnum á réttan kjöl. Til þess hníga ýmis rök, svo sem afar háar greiðslur Lífeyrissjóðs sjómanna vegna örorkulífeyris sem er afleiðing af því hversu hættulegt sjómannsstarfið er. Á undanförnum árum hefur örorkulífeyrir verið nálægt 45% af heildarlífeyrisgreiðslum Lífeyrissjóðs sjómanna. Sambærilegt hlutfall hjá öðrum lífeyrissjóðum er mun lægra, í sumum tilfellum allt niður í 20%.
    Í frumvarpinu er lagt til að þessi hækkun á hlutfallslegri greiðslu launagreiðanda myndi ekki aukinn rétt til lífeyris til 31. desember 2006. Þess í stað muni auknar greiðslur í sjóðinn af þessum toga notaðar til þess að auka eignir svo að þær geti staðið undir framtíðarskuldbindingum og bætt hag sjóðfélaga.