Ferill 302. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 345  —  302. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um uppgjör vegna innlausnar íbúða í félagslega íbúðakerfinu.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvað líður samningum við sveitarfélög eða samtök þeirra um uppgjör vegna innlausnar íbúða í félagslega íbúðakerfinu eins og kveðið er á um í heimildarákvæðum fjárlaga fyrir árið 2000?
     2.      Hve mikið fé hefur ríkissjóður ákveðið að leggja til þessa uppgjörs árið 2000?
     3.      Hve mikið fé hefur verið greitt til sveitarfélaganna samkvæmt þessari fjárlagaheimild árið 2000?