Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF -
Word Perfect 126. löggjafarþing 20002001.
Þskj. 400 318. mál.
Frumvarp til laga
um jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2001.
(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 20002001.)
1. gr.
Til að standa straum af fjárframlögum vegna alþjónustu árið 2001 skal innheimta jöfn
unargjald skv. 15. gr. laga um fjarskipti, nr. 107/1999, af gjaldskyldri veltu ársins. Gjaldið
skal nema 0,12% af bókfærðri veltu eins og hún er skilgreind í 2. mgr. 15. gr. laga um
fjarskipti.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Samkvæmt IV. kafla laga um fjarskipti, nr. 107/1999, er við útgáfu rekstrarleyfis hægt að
kveða á um skyldu fjarskiptafyrirtækja til að veita alþjónustu. Umfang alþjónustu er skil
greint í 13. gr. laganna og ákvæðum reglugerðar nr. 641/2000, um alþjónustu. Þurfi fjar
skiptafyrirtæki að veita alþjónustu þrátt fyrir að hún sé rekin með tapi eða óarðbær vegna
ákvörðunar stjórnvalda getur það öðlast endurkröfurétt á hendur sérstökum jöfnunarsjóði.
Rekstrarleyfishafi sem sinnir einhverjum þætti sem fellur undir alþjónustu vegna ákvörðunar
stjórnvalda getur því snúið sér til Póst- og fjarskiptastofnunar og sótt um framlag úr jöfnunar
sjóði ef þjónustan er rekin með tapi eða er óarðbær.
Í samræmi við 14. gr. fjarskiptalaga óskaði Póst- og fjarskiptastofnun eftir umsóknum um
fjárframlög úr jöfnunarsjóði vegna þeirra alþjónustukvaða sem eru lagðar á rekstrarleyfishafa
samkvæmt leyfisbréfum þeirra. Ein umsókn barst um fjárframlag og var hún frá Neyðarlín
unni ehf. Farið var fram á 20,5 millj. kr. vegna kostnaðar við neyðarsímsvörun sem skv. 4.
gr. reglugerðar nr. 641/2000 telst vera alþjónusta og fyrirtækinu hefur verið gert skylt að
veita samkvæmt rekstrarleyfi. Með umsókninni fylgdu fullnægjandi gögn um þann kostnað
sem umsækjandi ber af alþjónustukvöð. Póst- og fjarskiptastofnun áætlar því að greiða 20,5
millj. kr. úr jöfnunarsjóði á árinu 2001.
Lagt er til að jöfnunargjald verði ákveðið 0,12% fyrir árið 2001. Miðað er við veltu gjald
skyldra aðila á árinu 1999 (u.þ.b. 21,5 milljarðar kr.) og fjárþörf sjóðsins árið 2001. Í for
sendum er gert ráð fyrir 5% lægri veltu árið 2001 en var 1999 vegna gjaldskrárlækkana sem
leiða af harðnandi samkeppni. Stofninn er því áætlaður um 20 milljarðar kr. Nauðsynleg
álagsprósenta telst vera 0,10% en er hækkuð í 0,12% til að reiknað sé með vanhöldum.
Álagning og innheimta jöfnunargjalds fer eftir ákvæðum VIII.XIV. kafla laga nr.
75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2001.
Tilgangurinn með frumvarpinu er að setja á jöfnunargjald vegna alþjónustu. Í 15. gr. laga
nr. 107/1999, um fjarskipti, er kveðið á um að jöfnunargjald skuli ákveðið árlega með lögum.
Samkvæmt lögunum má skylda fjarskiptafyrirtæki til þess að veita svokallaða alþjónustu sem
er skilgreind í 13. gr. laganna. Ef þjónustan felur í sér meiri tilkostnað en sem nemur tekjum
getur viðkomandi fyrirtæki krafist fjárframlaga sem tryggja eðlilegt endurgjald fyrir þjónust
una. Til að standa straum af þessum greiðslum skal innheimt jöfnunargjald sem rennur til
Póst- og fjarskiptastofnunar og skal það ákveðið árlega með lögum. Í frumvarpinu er lagt til
að jöfnunargjaldið fyrir árið 2001 verði 0,12% af veltu fjarskiptafyrirtækja vegna almennrar
þjónustu. Samkvæmt upplýsingum frá samgönguráðuneytinu er gert ráð fyrir að stofn til
álagningar verði 20 milljarðar kr. Samkvæmt því er áætlað að álagning nemi 24 m.kr. Gjöld
á móti eru áætluð um 20 m.kr. sem er framlag vegna kostnaðar við neyðarsímsvörun og mið
ast við innheimtar tekjur. Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi
áhrif á afkomu ríkissjóðs þar sem gert er ráð fyrir tekjum á móti gjöldum.