Ferill 409. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 664  —  409. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um undanþágur frá fasteignaskatti.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hvernig verður unnið að þeim fyrirheitum sem fram koma í skýrslu nefndar um tekjustofna sveitarfélaga að fækka undanþágum frá fasteignaskatti?
     2.      Hvenær má vænta þess að þeirri vinnu ljúki og tillögur liggi fyrir?
     3.      Liggja fyrir upplýsingar um hve háum fjárhæðum þessar undanþágur geti numið?