Ferill 630. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1005 — 630. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)
1. gr.
Við 4. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Sama gildir um sölt, esta, peptíð og hvers konar afleiður (afbrigði) efna, sbr. 2. og 3. gr., þar með taldar afleiður sem eru frábrugðnar upprunalega efninu (viðmiðunarefninu) að því er varðar staðsetningu efnahóps eða efnahópa á kolefni, köfnunarefni, súrefni og/eða brennisteini.
2. gr.
Í stað orðsins „lögmætan“ í 6. mgr. 5. gr. laganna kemur: ólögmætan.
3. gr.
6. gr. laganna orðast svo:
Eftirtalin ávana og fíkniefni falla undir 1. mgr. 2. gr.: 1-Fenyl-2-butylamine, 4-metylaminorex, 4-MTA, A1-fenyl-1-piperidyl-(2)-metyl acetat, Acetorphine, Acetylmeskaline, Allobarbital, Brallobarbital, Brolamfetamine, Brotizolam, Brom-STP, Butobarbital, Cannabis (Kannabis, Marihuana, Hass), Cannabis harpix, Carfentanil, Cathinone, Chlorali hydras, Chloralodolum, Clomethiazolum, Cocainum, Desornorphinum, DET, Dexamfetamine, DMA, DMHP, DMT, DOET, Enhexymalum, Eticyclideine, Etilamfetamine, Etorphine, Fenetylline, GHB, Heptamalum, Heroin, Hexapropymatum, Hydroxyamfetamine, Hydroxytetrahydrokannabinolar, Ibogain, Kat, Levonantradol, Lysergide, MDA, MDE, MDMA, Mescaline, Methamfetamine, Methandriolum, Methaqualone, Methcathinone, Methylpentynolum, Metohexital, Metylmeskaline, MMDA, Modafinil, Nabilon, N-ethyl MDA, N-hydroxyamfetamine, Parahexyl, PHP, PCPY, PMA, Propylhexedrinum, Psilocybinum, Psilocine, Pyrityldion, STP, DOM, TCP, TMA, Tybamatum, Vinylbital.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er unnið eftir tillögum starfshóps sem dómsmálaráðherra skipaði og fól að fara yfir löggjöf og reglur varðandi vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna. Hópurinn var settur á fót að tillögu ríkissaksóknara vegna óvissu, sem reis í kjölfar dóma þar sem sýknað hafði verið af ákærum þar sem refsiheimildir á þessu sviði þóttu ófullnægjandi. Af þeim sökum hefur ekki verið talið fært af ákæruvaldsins hálfu að höfða opinber mál vegna þeirra efna sem um ræðir í frumvarpinu.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hér er um nokkurs konar „regnhlífarákvæði“ að ræða, sem veitir ráðherra heimild til að grípa fljótt inn í og banna tiltekin efni á íslensku yfirráðasvæði, en til þessa hefur heimild ráðherra skv. 2. mgr. 2. gr. laganna verið bundin við að efnin séu á alþjóðlegum listum um ávana- og fíkniefni, sbr. alþjóðasamninga sem Ísland hefur gerst aðili að. Þeir samningar eru Alþjóðasamningur um ávana- og fíkniefni, 1961, með síðari breytingum (Single Convention on Narcotic Drugs 1961), Alþjóðasamningur um ávana- og fíkniefni, 1971, ásamt viðaukum (Convention on Psychotropic Substances 1971) og Alþjóðasamningur gegn ólöglegri verslun með fíkniefni og skynvilluefni, 1988, (United Nations Convention against Illicit Traffic in Narcotic Drugs and Psychotropic Substances 1988). Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, International Narcotics Control Board (INCB), uppfærir listana. Þegar ný efni koma upp, sem ástæða þykir til að banna sem ávana- og fíkniefni, er þannig ekki unnt að banna þau hér á landi nema breyting hafi verið gerð á alþjóðasamningum og þau tekin þar upp. Breytingar á slíkum samningum geta hins vegar tekið langan tíma og á meðan er ekki unnt að refsa fyrir sölu og meðferð efnanna. Þannig er hætta á að löggjafinn sé ávallt skrefi á eftir. Ávallt geta komið upp ný ávana- og fíkniefni og ýmis afbrigði þeirra sem ekki eru í alþjóðasamningum en telja verður nauðsynlegt að banna sem ávana- og fíkniefni. Er lagt til að ráðherra verði heimilt að kveða á um, í reglugerð um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, að auk efna sem talin eru upp í fylgiskjali með reglugerðinni séu jafnframt bönnuð sölt, estar, peptíð og hvers konar afleiður (afbrigði) efnanna sem tilgreind eru í fylgiskjölum I og II með henni, þar með taldar afleiður, sem eru frábrugðnar upprunalega efninu (viðmiðunarefninu) að því er varðar staðsetningu efnahóps eða efnahópa á kolefni, köfnunarefni, súrefni og/eða brennisteini. Dæmi: Fentanyl og alfametylfentanyl, 3,4-metylendíoxyamfetamín (MDA) og 3,4- metylendíoxymetylamfetamín (MDMA, morfín og metylmorfín (kódein)).
Þess er að geta að í dönsku ávana- og fíkniefnalögunum, Lov om euforiserende stoffer nr. 391/1969, með síðari breytingum, er heimild ráðherra til að banna efni ekki eingöngu bundin við efni í alþjóðasamningum heldur er unnt að banna efni sem heilbrigðisráðuneytið metur þannig að sérstaklega mikil hætta stafi af. Þá má nefna að í bresku ávana- og fíkniefnalögunum, The Misuse of Drugs Act 1971, með síðari breytingum, hefur verið sett sérstakt ákvæði sem er ætlað að ná sérstaklega til ýmissa afbrigða MDMA.
Um 2. gr.
Í greininni er verið að lagfæra augljósa misritun í lögunum.
Um 3. gr.
Varsla og meðferð þeirra ávana- og fíkniefna, sem talin eru í greininni, er óheimil á íslensku forráðasvæði. Miklar breytingar hafa orðið á ávana- og fíkniefnum frá því að lögin voru sett 1974. Listinn er ítarlegri en sá sem er í gildandi lögum. Ráðherra er þó heimilt að veita undanþágu frá þessu banni þegar sérstaklega stendur á og þá aðeins eftir þeim reglum og skilyrðum sem hann setur, sbr. 3. mgr. 2. gr. gildandi laga.
Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974,
um ávana- og fíkniefni, með síðari breytingum.
Með frumvarpinu er lagt til að rýmkuð verði heimild ráðherra til að takmarka innflutning, vörslu og meðferð efna sem teljast til ávana- og fíkniefna. Ekki verður séð að frumvarpið hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs.