Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1355, 126. löggjafarþing 553. mál: birting laga og stjórnvaldaerinda (birting EES-reglna).
Lög nr. 63 26. maí 2001.
Um breytingu á lögum um birtingu laga og stjórnvaldaerinda, nr. 64 16. desember 1943, með síðari breytingum.
Um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2 13. janúar 1993, með síðari breytingu.
Þingskjal 1355, 126. löggjafarþing 553. mál: birting laga og stjórnvaldaerinda (birting EES-reglna).
Lög nr. 63 26. maí 2001.
Lög um breytingu á lögum um birtingu laga og stjórnvaldaerinda, nr. 64 16. desember 1943, o.fl.
1. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 2. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga nr. 22/1962 og 1. gr. laga nr. 95/1994:- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein er hljóðar svo:
- Við 2. mgr., er verður 3. mgr., bætist nýr málsliður er hljóðar svo: Birting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar og þeirra gerða, sem þar er vísað til, í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB telst jafngild birting að þessu leyti.
2. gr.
4. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 91/1994, fellur brott.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 15. maí 2001.