Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Áður en gengið er til dagskrár fer fram umræða utan dagskrár um uppsagnir á Múlalundi. Málshefjandi er hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir en hæstv. félmrh. Páll Pétursson verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.